Um Róló
Verslunin Róló var opnuð 6. maí 2010 í Glæsibæ.
Markmið okkar er að bjóða vandaðan og litríkan fatnað á góðu verði sem er að mestu leiti ekki fáanlegur annars staðar hér á landi. Hver flík er valin sérstaklega með tilliti til hönnunar, framleiðslu og frágangs. Fatnaðurinn er aðallega úr bómul sem unnin er á umhverfisvænan hátt. Það sem einkennir fatnaðinn í Róló er að fötin eru þægileg fyrir börnin. Mismunandi er eftir merkjum hvaða stærðir koma og eru stærðirnar frá 50/56cm - 164cm.
Við í Róló reynum að halda öllum verðum sem mest niðri með því t.d að afþakka alla skókassa með Pjs skónum.
Starfsfólk RÓLÓ leggur sérstaka áherslu á að veita góða þjónustu.
Merkin sem mest eru áberandi í versluninni eru:
Villervalla frá Svíþjóð, Keedo Frá Suður-Afríku og Puddle Jumper Shoes skór frá Bandaríkjunum.