Skilmálar


Skilmálar og reglur

Þegar þú pantar vörur í vefverslun Róló færð þú hana senda heim eða á pósthús um leið og greiðsla hefur borist.  Um leið og þú greiðir fyrir vöruna færð þú staðfestingu senda í netpósti.

Þegar þú greiðir með kreditkorti  er öryggi þitt tryggt með dulkóðun kreditkortanúmers. VSK er innifalinn í öllum verðum í netversluninni.

Þess má geta að öll verð eru birt með fyrirvara um myndabrengl og prentvillur.

Við leggjum okkur fram um að sýna allar vörur okkar í réttum litum. Það er hins vegar útilokað að ábyrgjast alveg rétt litbrigði eins og þau birtast á þínum tölvuskjá vegna þess að vefmyndir búa við ákveðnar tæknilegar takmarkanir.

Sendingarkostnaður

Sendingarkostnaður greiðist við afhendingu vörunnar.

RÓLÓ greiðir sendingarkostnað sé pantað fyrir 20.000 kr. eða meira.

Einnig er hægt að nálgast vöruna í Róló Glæsibæ (sjá opnunartíma á forsíðu)

Skilaréttur

Kaupandi  getur skipt vöru innan 30 daga gegn inneignanótu, en þá þarf varan að vera í upprunalegu ástandi og kvittun þarf að fylgja með. Útsöluvörum fæst aðeins skipt í aðrar útsöluvörur.
Sendingakostaður er ekki endurgreiddur nema um galla sé að ræða .

Trúnaður

Við heitum viðskiptavinum okkar trúnaði. Upplýsingar verða ekki afhendar þriðja aðilia undir neinum kringumstæðum í tengslum við viðskiptin.